Mynd með frétt20. feb. 2012

Öskudagur 22. febrúar

Furðufataball / frjálskæðnaður Öskudagur er dagur gleði og glaums, allir mæta í búningum Dagskrá: 8:00 - 9:45 börnin koma 9:45 - 10:00 Söngur á sal 10:00 10:15 leikrit, starfsmenn leika fyrir börnin 10:15 kötturinn sleginn úr pokanum 10:30 börn yngri deildum dansa í salnum 11:00 börn á eldri deildum dansa í salnum ... [ nánar ]
Mynd með frétt08. feb. 2012

Takk fyrir komuna á degi leikskólans

Við þökkum öllum fyrir komuna á degi leikskólans. Gaman að sjá hvað margir höfðu tök á því að koma í heimsókn til okkar. Var þetta mjög skemmtilegur dagur fyrir börn og starfsfólk. Hér má sjá nokkrar myndir.... [ nánar ]
Mynd með frétt01. feb. 2012

Dagur leikskólans - 6. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar er Dagur leikskólans og bjóðum við alla velkomna í heimsókn til að fylgjast með og kynnast daglegu leikskólastarfi. Í tilefni dagsins bjóðum við ömmu og afa í heimsókn milli kl. 15:00 – 16:00. ... [ nánar ]
Mynd með frétt26. jan. 2012

Þorrablót var föstudaginn 20 janúar

Föstudaginn 20. janúar. blótuðum við Þorrann. Í tilefni dagsins voru sunginn þorralög í söngstund á sal og Alda spila undir á gítar. Bárður Víkingurinn okkar koma og sýndi börnunum ýmislegt sem víkingar eiga. Elstu stúlkurnar sungu fyrir elstu drengina og færðu þeim blóm sem þær hafa búið til. Allir borðuð við svo þorramat í hádeginu... [ nánar ]
Mynd með frétt12. jan. 2012

Gleðilegt ár

Nú er nýtt ár gengið í garð og hefjum við skipulagða vetrarstarfið aftur þessa vikuna. Gott verður að koma reglu á allt aftur eftir gott frí í faðmi fjölskyldunnar og vina. Við byrjum á vali, hreyfing, þema vinna og markviss málörvun börn og starfsfólk spennt að byrja aftur.... [ nánar ]
Mynd með frétt21. des. 2011

Jólakveðja frá starfsfólki og börnum

Við óskum öllum börnum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsælts komandi árs með þökk fyrir ánægjulegt samstarf á liðnu ári. Jólakveðja frá öllu starfsfólki Bæjarbóls ... [ nánar ]
Mynd með frétt07. des. 2011

Aðventan

Mikill undirbúningur er á öllum deildum fyrir jólin og alla þá skemmtilegu viðburði sem eru á aðventunni. Börnin föndra, baka og syngja jóllögin. Leggjum samt áherslu á að draga úr þeirri spennu sem jólamánuðurinn veldur.... [ nánar ]
Mynd með frétt28. nóv. 2011

Virkur vinnustaður

Bæjarból er einn af þeim vinnustöðum sem taka þátt í þróunarverkefni sem nefnist Virkur vinnustaður og er á vegum fyrirtækjasviðs VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs. Verkefnið er til þriggja ára og taka 12 fyrirtæki/stofnanir þátt, en undir þau tilheyra samtals 35 vinnustaðir með tæplega 1600 starfsmenn. Tilgangur verkefnisins er að veita stjórnendum og starfsmönnum fræðslu og ráðgjöf við að móta og innleiða stefnu um velferð, fjarvistir og endurkomu til vinnu.... [ nánar ]
08. nóv. 2011

Leikskólinn 35 ára þriðjudaginn 15. nóv.

35 ár eru liðin frá því að leikskólinn Bæjaból hóf starfsemi sína og verður haldið upp á það 15. nóvember. ... [ nánar ]
Mynd með frétt02. nóv. 2011

Slökkviliðið í heimsókn

Börnin á Stjörnuholti fengum slökkvilið höfuðborgasvæðisins í heimsókn til sýn. Þeir fræddu þau um hvernig þau eiga að bregðast við ef kviknar í hjá þeim, hvernig þau eiga að bíða eftir hjálp, hvert þau eiga að fara ef þau þurfa að fara út úr húsinu, hvernig þau töka á móti slökkviliðsmönnunum ef þeir þurfa að bjarga þeim og margt margt fleira. ... [ nánar ]
03. okt. 2011

Aðalfundur foreldrafélagsins

Aðalfundur foreldrafélags og foreldraráðs Bæjarbóls verður haldinn fimmtudagskvöldið 6. október kl. 20:00... [ nánar ]
31. ágú. 2011

Stækkun Bæjarbóls

Nú í byrjun september verður Bæjarból sex deilda leikskóli og er það gert til að sem flest börn í Garðabæ fái leikskólapláss á meðan lokið er við leikskólanum í Akrahverfinu. Fjórar deildir eru í aðalbyggingu, ein deild í Flataskóla (Stjörnuholt) þar sem elsti árgangur leikskólans verður í vetur og sjötta deildin í færalegri kennslustofu í garðinum, þar verða 16 börn fædd 2007. Höfum við nefnt hana Vinaholt.... [ nánar ]
21. ágú. 2011

Verkfalli aflýst

Boðuðu verkfalli Félags leikskólakennara sem átti að hefjast mánudaginn 22. ágúst hefur verið aflýst. Mæta allir hressir og kátir í leikskólann á mánudaginn.... [ nánar ]
Mynd með frétt19. ágú. 2011

Fyrirhugað verkfall

Á þessari stundu er óvíst að samningar takist fyrir mánudaginn og mun því boðað verkfall koma til framkvæmda nk. mánudag. Ljóst er að verkfall mun hafa í för með sér mikla röskun fyrir leikskólabörn, foreldra þeirra og starfsfólk. Við höfum verið lánsöm á Bæjarbóli þar sem hér starfar vel menntað, reynslumikið og fært fólk. Allar deildar verða því lokaðar ef til verkfalls kemur. Forráðamenn barna í leikskólum eru hvattir til að fylgjast vel með fréttum af samningaviðræðum og tilkynningum á heimasíðu Garðabæjar og leikskólans.... [ nánar ]
19. ágú. 2011

Andlát

Mánudaginn 8. ágúst 2011 lést formaður Heilsustefnunnar Unnur Stefánsdóttir. Unnur verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju föstudaginn 19. ágúst kl. 13. Við á Bæjarbóli vottum aðstandendum Unnar samúð okkar. Unnur var kraftmikill leiðtogi og frumkvöðull. Hún var upphafsmaður Heilsustefnunnar og hefur sú stefna vaxið og dafnað undir hennar stjórn.... [ nánar ]
Mynd með frétt05. ágú. 2011

Sumarið

Sumarið er búið að vera gott hjá okkur! Síðustu vikur hafa verið fámennar en þá hefur framkvæmdagleðinn ráðið ríkjum, búið að bóna, mála og taka til og þökkum við öllum þolinmæðina á meðan á þessu stóð. Við erum búnar að vera heppnar í sumar með starfsfólk sem kemur til okkar úr atvinnuátaki Garðabæjar og frá vinnuskólanum. Ýmislegt hefur verið brallað í sumar og erum við búnar að setja nokkrar nýjar myndir inná vefinn hjá okkur af börnunum í leik í sumar. ... [ nánar ]
20. jún. 2011

Vorverkin okkar

... [ nánar ]
23. maí 2011

Í dag munum börnin vera inni hjá okkur.

Í dag munum við halda börnunum inni meðan við erum að átta okkur á stöðunni. Við fylgjumst með mælingum á loftgæðum á vef Reykjavíkurborgar.... [ nánar ]
Mynd með frétt20. maí 2011

Útskriftardagur elstu barnanna

Útskrift elstu barnanna fór fram á Stjörnuholti 18. maí, komu börn og starfsfólk á Nónholti og Móholti og voru við athöfnina. Var þetta einstaklega hátíðleg stund og á eftir fóru börnin í útskriftarferð í Guðmundarlund sem er útivistarsvæði í eigu Skógræktarfélags Kópavogs. Þar var farið í ratleik og grillað og leikið sér, og vorum við enn og aftur einstalega heppin með veður. ... [ nánar ]
Mynd með frétt20. maí 2011

Íþróttadagur

Þriðjudaginn 17. maí var íþróttadagur á Bæjarbóli. Ekki létum við veðrið stoppa okkur þó það væri svolítið kalt, klæddum við okkur bara betur og vorum dugleg að hreyfa okkur. Börnin voru mjög dugleg og áhugasöm. Í hádegismat var hollur og góður matur. Pasta og bakki með grænmeti og ávöxtum og vatn að drekka. Allir svangir eftir að taka þátt í dagskránni. ... [ nánar ]
Mynd með frétt20. maí 2011

Uppákomur í maí

Það hafa verið margar skemmtilegar uppákomur hjá okkur í maí og höfum við verið einstaklega heppin með veður. Þökkum við öllum fyrir þátttökuna á þessum dögum. Erum að setja inn myndir af þessum viðburðum. Opið hús 7. maí, þá var sýning á verkum barnanna og foreldrafélagið leigði hoppikastala og var góð innkoma af árlegri kaffisölu en ágóðinn af henni hefur runnið til leikskólans til tækjakaupa og fl. Sveitaferð var 11. maí og þetta árið var ákeðið að stytta rútuferð barnanna og fórum við í heimsókn að Hraðastöðum í Mosfellsdal, gáfum við öllum foreldrum kost á að koma með okkur og var þetta mjög góður dagur. ... [ nánar ]
Mynd með frétt31. mar. 2011

Mál til komið að lesa

Við á Bæjarbóli erum þáttakendur í þróunarverkefni sem er í gangi í öllum leikskólum bæjarins. Verkefni heitir „ Mál til komið að lesa“ . Markmið þessa verkefnis er: Annars vegar að þróa markvissar sögu- og samræðustundir í leikskólum Garðabæjar. Þeim er ætlað að stuðla að auknum hlustunar- og málskilningi barna, auka orðaforða þeirra, hugtakaskilning og tjáningu. Hins vegar er markmið verkefnisins að fræða foreldra leikskólabarna og styðja í hlutverki sínu í málörvun barna. Verkefnið fellur því að lestrarkennslu og læsi í víðum skilningi. ... [ nánar ]
Mynd með frétt01. mar. 2011

Öskudagur 9. mars

Furðufataball / frjálskæðnaður Dagskrá: 8:00 - 9:45 börnin koma 9:45 - 10:00 Skemmtun á sal 10:00 10:15 leikrit starfsmanna 11:00 ball ... [ nánar ]
24. feb. 2011

Slökkvistöðin í Hafnarfirði heimsótt laugardaginn 5. mars

Heimsókn á slökkvistöðina í Hafnarfirði Laugardaginn 5. mars kl 13:00 ætlar slökkvistöðin í Hafnarfirði að taka á móti leikskólabörnunum á Bæjarbóli ásamt foreldrum. Stöðin er við Skútuhraun. Hlökkum til að sjá ykkur Foreldrafélagið ... [ nánar ]
Mynd með frétt18. feb. 2011

Videó af söng elstu drengjanna til stúlknanna

Elstu drengirnir sungu til stúlknanna í tilefni af konudegi í söngstund á sal. Börnin á Nónholti léku lag og hér fyrir neðan eru videó af söng barnanna og myndir af öllum deildum að syngja.... [ nánar ]
Mynd með frétt07. feb. 2011

Takk fyrir komuna á degi leikskólans

Við þökkum öllum fyrir komuna á degi leikskólans. Gaman að sjá hvað margir höfðu tök á því að koma í heimsókn til okkar á degi leikskólans. Var þetta mjög skemmtilegur dagur fyrir börn og starfsfólk.... [ nánar ]
Mynd með frétt28. jan. 2011

Videó af söng elstu stúlknanna til drengjanna

Í tilefni Bóndadags sungu elstu stúlkurnar til drengjanna og færðu þeim blóm.... [ nánar ]
Mynd með frétt20. jan. 2011

Þorrablót föstudaginn 21 jan.

Föstudaginn 21. jan. blótum við Þorrann. 'i tilefni dagsins verður sunginn þorralög í söngstund á sal og mun Erna Aradóttir (fyrrverandi leikskólastj) spila undir á gítar. Bárður Víkingurinn okkar mun koma og sýna börnunum ýmislegt sem víkingar eiga.... [ nánar ]
29. des. 2010

Skólaþing

Mánudaginn 10 janúar kl. 19:30 – 21:30 ætlum við á Bæjarbóli að hafa skólaþing þar sem við komum saman og förum ofan í markmið nýju skólastefnu Garðabæjar fyrir árin 2010 - 2013 og skoðum hana út frá starfsemi Bæjarbóls. Hugmyndin er að setjast niður í hópum, starfsfólk og foreldrar og ræða saman um markmiðin og svara hvernig við á Bæjarbóli erum að mæta hverju markmiði og koma með hugmyndir hverju við viljum breyta og bæta á næstu þremur árum. ... [ nánar ]
Mynd með frétt23. des. 2010

Gleðileg jól

Við óskum öllum börnum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsælts komandi árs með þökk fyrir ánægjulegt samstarf á liðnu ári. Jólakveðja frá öllu starfsfólki Bæjarbóls ... [ nánar ]
Mynd með frétt22. des. 2010

Jólagleði

Við áttum einstaklega góðan dag á jólagleðinni okkar. Fyrir hádegi héldum við jólaball og fengum til okkar góðan gest hana Ernu (fyrrverandi leikskólastjóri) sem kom og spilaði undir dansinn. ... [ nánar ]
Mynd með frétt13. des. 2010

Jólaball foreldrarfélgsins

Gaman hvað margir gátu verið með á jólaballi foreldrafélgsins sem var haldið í Flataskóla. ... [ nánar ]
Mynd með frétt05. des. 2011

Aðventan

Mikill undirbúningur er á öllum deildum fyrir jólin og alla þá skemmtilegu viðburði sem eru á aðventunni. Börnin föndra, baka og syngja jóllögin. Leggjum samt áherslu á að draga úr þeirri spennu sem jólamánuðurinn veldur... [ nánar ]
Mynd með frétt15. nóv. 2010

Mjallhvít og dvergarnir sjö

Fengum til okkar leiksýninguna Mjallhvít og dvergarnir sjö föstudaginn 12. nóv. er það frá leikhópnum Tíu fingur. Helga Arnalds var í hlutverki sögukonunnar sem leiddi börnin í gegnum söguna á óvenjulegan hátt, með töfrabrögðum, myndskyggnum, brúðum, grímum og söng. Höfðu börnin mjög gaman af þessari sýningu.... [ nánar ]
Mynd með frétt11. nóv. 2010

Elstu börnin í Heiðmerkurferð

Elstu börnin fóru í Heiðmerkurferð 10. nóv. í góðu veðri. Heiðmerkurferðin var svakalega skemmtileg, börnin nutu sín vel í náttúrunni við leik, fjallaklifur og náttúruskoðun. Það var ýmislegt sem við gerðum okkur til skemmtunar. Við fórum í leiki (Ræningjaleik, feluleik, finna samstæður, Ungamamma og athyglisleik). ... [ nánar ]
04. nóv. 2010

Hvert er hlutverk foreldra?

Málþroski leikskólabarna og tengsl hans við velgengni í lestrarnámi. Viljum við hvetja foreldra til að mæta á fróðlegan fyrirlestur sem verður haldið miðvikudaginn10. nóv. Í sal Flataskóla kl. 20 – 21 Hrafnhildur Ragnarsdóttir, próferssor við Háskóla Íslands og Ásdís Hrönn Jónsdóttir, leikskólakennari fjalla um mikilvægi leikskólaáranna í málþróska barna og hvað hlutverk foreldrar gegna í velgengni barna í lestrarnámi.... [ nánar ]
26. okt. 2010

Slökkviliðsmenn í heimsókn.

Miðvikudaginn 27 október fáum við slökkviliðsmenn í heimsókn til okkar með fræðslu fyrir elstu börnin. Þessi leikskóli og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hafa ákveðið að taka höndum saman um að auka öryggi barnanna og starfsfólksins með öflugu eldvarnareftiliti og fræðslu. ... [ nánar ]
22. okt. 2010

Alþjóðlegur bangsadagur miðvikud. 27 .okt.

Í næstu viku er Alþjóðlegur bangsadagur miðvikudaginn 27. okt.og af því tilefni mega börnin gjarnan koma með bangsann sinn með sér á mánudaginn, og vera með hann hér alla vikuna.... [ nánar ]
04. okt. 2010

Sögustund í Þjóðleikhúsið fyrir börn fædd 2005 og 2006

Föstudaginn 8 okt. kl. 13:15 er börnum fædd 2005 og 2006 boðið í sögustund í Þjóðleikshúsið að hlusta á Karlson, Lítill;Trítill og fuglarnir í flutningi leikaranns Baldurs Tausta Hreinssonar og Lilju Guðrúnar Þorvaldsdóttir. ... [ nánar ]
Mynd með frétt23. sep. 2010

Aðalfundur foreldrafélagsins

Miðvikudaginn 29. sept. kl. 20:00 verður Aðalfundur foreldrafélagsins á Bæjarbóli... [ nánar ]
Mynd með frétt09. sep. 2010

Alþjóðlegurdagur læsis 8. sept.

Í tilefni af Alþjóðlegum degi læsis brutum við starfið upp og lásum fyrir börnin þar sem við vorum úti í garði og inni á deildum. ... [ nánar ]
06. sep. 2010

Ný útgefin Skólastefna Garðabæjar

Nýja útgáfu af Skólastefnu Garðabæjar 2010 – 2013 má finna á heimasíðu leikskólans undir flipanum Um leikskólann – skólastefna Garðabæjar. ... [ nánar ]
03. sep. 2010

Nýtt leikskólaár byrjað 2010 - 2011

Nú er tími aðlögunar í hámarki á leikskólanum, mörg ný börn að byrja. Það hafa orðið tímabundnar breytingar á Bæjarbóli en í vetur erum við fimm deilda leikskóli og er ein deildin okkar í húsakynnum Flataskóla. Við þessar breytingar fjölgaði í starfsmannahópnum og erum við búnar að fá til liðs við okkur marga góða starfsmenn og einnig hafa orðið nokkrar tilfærslur á starfsfólk á milli deilda. ... [ nánar ]
Mynd með frétt03. jún. 2010

Menningarferðin tókst vel

Blái hópurinn fór í menningarferð til Reykjavíkur í dag... [ nánar ]
30. maí 2010

Marel gefur leikskólum Garðabæjar vísindabúnað

Marel gaf öllum leikskólunum í Garðabæ gjöf á dögunum til eflingar kennslu á sviði náttúruvísinda og raungreina.... [ nánar ]
Mynd með frétt14. maí 2010

Fyrsti Heilsuleikskólinn í Garðabæ

Leikskólinn Bæjarból fékk viðurkenningu sem Heilsuleikskóli miðvikudaginn 12 maí og er þá formlega komin í Samtök Heilsuleikskóla. Í tilefni af því héldum við hátíð og buðum gestu til okkar. Bæjarstjórinn færði okkur gjöf. Þökkum við öllum fyrir skemmtilegan dag.... [ nánar ]
Mynd með frétt27. apr. 2010

Skemmtileg opnunarhátíð leik- og grunnskóla

Börnunum fannst mjög gaman á opnunarhátíð leik- og grunnskóla sem var á Garðatorgi. Skrúðganga frá leikksólanum og svo skemmtidagskrá á torginu.... [ nánar ]
Mynd með frétt21. apr. 2010

Opið hús laugardaginn 24 apríl

Mikill undirbúningur er búin að vera í leikskólanum hjá börnum og starfsfólki undanfarna daga vegna opna hússins á laugardag og listadaga barna og ungmenna í Garðabæ.... [ nánar ]
21. apr. 2010

Áætlanir virkjaðar

Garðabær hefur í varúðarskyni virkjað viðbragðsáætlanir sínar í samræmi við ákvarðanir Almannavarnarnefndar höfuðborgarsvæðisins, jafnvel þó að hverfandi líkur séu á að öskufall verði á höfuðborgarsvæðinu að mati Veðurstofu Íslands.... [ nánar ]
24. mar. 2010

Skólaheimsóknir elstu barnanna

Elstu börnin eru þessa daganna að heimsækja grunnskólanna og kynna sér þá. Þau fara fyrst í stuttar heimsóknir og skoða skólahúsnæðið. Síðan í apríl fara þau í vorskóla og taka þá þátt í starfi 1. bekkjar og fara í frímínutur.... [ nánar ]
Mynd með frétt01. mar. 2010

1. bekkur í Flataskóla í heimsókn

Við höfum fengið í heimsókn til okkar 1. bekk Flataskóla föstudaginn 5. febrúar og núna aftur 1. mars.... [ nánar ]
01. mar. 2010

Ömmu og afa boðið í heimsókn á degi leikskólanna.

Við þökkum öllum fyrir komuna á degi leikskólans. Gaman að sjá hvað margir höfðu tök á því að koma í heimsókn til okkar á degi leikskólans. Var þetta mjög skemmtilegur dagur fyrir börn og starfsfólk.... [ nánar ]
02. feb. 2010

Dagur leikskólans 6. febrúar

Föstudaginn 5. febrúar bjóðum við alla velkomna í heimsókn til að fylgjast með og kynnast daglegu leikskólastarfi.... [ nánar ]
Mynd með frétt22. jan. 2010

Frétt frá strákunum á Nónholti

Benjamín, Stefán og Guðmundur Alex á kubbasvæði. Við fundum þetta upp, ætluðum að gera Hallgrímskirkju svo kastla, hættum svo við og vildum að þetta væri Garðabæjarkirkja. Benjamín sagði „ Ég gerði kirkjugarðinn“ Þetta svona samvinnu verkefni. Stefán rétti Benjamín sem rétti Alex.... [ nánar ]
21. jan. 2010

Þorrablót föstudaginn 22. janúar

Föstudaginn 22. jan. blótum við Þorrann. Í tilefni dagsins verða sunginn þorralög í söngstund á sal og mun Erla Hrönn spila undir söngin á gítar og Bárður Víkinginn kemur til okkar eins og undanfarin ár. Boðið verður upp á þorramat í hádeginu.... [ nánar ]
Mynd með frétt13. jan. 2010

Gleðilegt ár og þökkum fyrir það gamla

Í næstu viku hefst skipulagða starfið hjá okkur aftur. Leikfimi, þema, elstu barna verkefnið og markviss málörvun. Allir spenntir að byrja og takst á við krefjandi verkefni.... [ nánar ]
Mynd með frétt23. des. 2009

Gleðileg jól

Við óskum öllum börnum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsælts komandi árs með þökk fyrir ánægjulegt samstarf á liðnu ári. Jólakveðja frá öllu starfsfólki Bæjarbóls ... [ nánar ]
Mynd með frétt23. des. 2009

Jólagleði

Við áttum einstaklega góðan dag á jólagleðinni okkar. Fyrir hádegi héldum við jólaball og fengum til okkar góða gesti. ... [ nánar ]
Mynd með frétt16. des. 2009

Gönguferð í myrkrinu.

Í morgun fóru Móholt og Nónholt saman í gönguferð í myrkrinu og skoðuðu jólaljósin á leiðinni í leiksvæðið við Smáraflöt. Þar sungum við saman og fengum okkur heitt kakó og piparkökur. Mjög skemmtileg ferð að leika sér úti í myrkrinu og fara svo heim í björtu. ... [ nánar ]
Mynd með frétt16. des. 2009

Skemmtileg ferð í Ásgarð

Börnin á eldri deildum fóru í stóra íþróttasalinn í Ásgarði og losuðu um jólaspennuna. Mjög skemmtileg ferð hlaupið, farið í leiki, þrautabraut og allir lögðust niður og hvíldu sig í lokin.... [ nánar ]
Mynd með frétt13. des. 2009

Foreldrakaffi

Þökkum við öllum foreldrum fyrir komuna á foreldrakaffi 8. des. Allir áttu notalega stund með börnunum og gæddu sér á smákökum sem börnin höfðu bakað.... [ nánar ]
Mynd með frétt07. des. 2009

Kirkjuferð

Börnin áttu hátíðlega stund í Vidalínskirkju. fimmtudaginn 3. des. Gengið var til kirkju og tóku á móti okkur Friðrik og Margrét.... [ nánar ]
Mynd með frétt26. nóv. 2010

Undirbúningur jólanna

Mikill undirbúningur er á öllum deildum fyrir jólin og alla þá skemmtilegu viðburði sem eru á aðventunni. Börnin föndra, baka og syngja jóllögin. Leggjum samt áherslu á að draga úr þeirri spennu sem jólamánuðurinn veldur... [ nánar ]
Mynd með frétt10. nóv. 2009

Íþróttaálfurinn í heimsókn

Mánudaginn 9. nóvember kl.10:00 kom íþróttaálfurinn og gera léttar og skemmtilegar hreyfingar með börnunum og fræddi þau aðeins um mikilvægi þess að borða Íþróttanammi (ávexti og grænmeti) og hreyfa sig reglulega.... [ nánar ]
Mynd með frétt10. nóv. 2009

Aftur útikennsla nú blár hópur

Fyrsta ferðin í útikennslu var farin í Heiðmörk. Börn fædd 2004 (blár hópur) fór í fyrstu ferðin og gekk sú ferð mjög vel. Mjög skemmtilegt og fengum við gott veður.Í vetur ætlum við að flétta þemavinnuna í útikennslu að hluta. Börnin ákveða markmið og viðfangsefni ferðarinnar og hjálpast að við að undirbúa hvað þarf að hafa með í ferðina.... [ nánar ]
03. nóv. 2009

Veikindi

Hér á Bæjarbóli er nokkuð um veikindi hjá okkur þessa dagana . Það eru börn og starfsfólk sem eru veik og einhver staðfest tilfelli af H1N1 veirunni. Samkvæmt leiðbeiningum frá stóttvarnalækni biðjum ykkur að halda börnunum heima í a.m.k 2 daga hitalausum.... [ nánar ]
Mynd með frétt30. okt. 2009

Útikennsla

Fyrsta ferðin í útikennslu var farin í Heiðmörk. Börn fædd 2005 (rauður hópur) fór í fyrstu ferðin og gekk sú ferð mjög vel. Mjög skemmtilegt og fengum við gott veður.Í vetur ætlum við að flétta þemavinnuna í útikennslu að hluta. Börnin ákveða markmið og viðfangsefni ferðarinnar og hjálpast að við að undirbúa hvað þarf að hafa með í ferðina.... [ nánar ]
Mynd með frétt30. okt. 2009

Bangsadagur

Þriðjudaginn 27.október er Alþjóðlegur Bangsadagur. Af því tilefni ætlum við á Bæjarbóli að heimsækja bókasöfn í Garðabæ mánudaginn 26.október.Blái hópur fer á bókasafnið í Flataskóla og Rauði hópur fer á bókasafn Garðabæjar.... [ nánar ]
Mynd með frétt20. okt. 2009

Elstu börnunum boðið í listasmiðju.

Elstu börnunum var boðið í skemmtilega heimsókn í gamla Hagkaupshúsið þar sem er listasmiðja full af verðlausu efni sem börnin fengu aðgang að til að búa til t.d. brúður eða furðuveru.... [ nánar ]
02. okt. 2009

Aðalfundur foreldrafélagsins

Fimmtudaginn 8. okt. kl. 20:00 verður Aðalfundur foreldrafélagsins Verkefni fundarins: Orri Páll Jóhannsson frá Landvernd verður með kynningu. Foreldarfélagið kynnir sig og verkefni síðasta vetrar. Kosið í stjórn fyrir árið 2009 - 2010 Umræður ... [ nánar ]
22. sep. 2009

Leikhúsferð í Þjóðleikhúsið

Miðvikudaginn 23. september fara börnin á eldri deildum ( Nónholt og Móholt ) í þjóðleikhúsið kl. 12:45 ... [ nánar ]
Mynd með frétt08. sep. 2009

Leikfimi

Þriðjudaginn 15.september ætlar Auður að byrja með skipulagða leikfimina í sal. Öll börn þurfa því að koma með leikfimisfatnað fyrir þann dag, sem síðan er geymdur hér í leikskólanum. ... [ nánar ]
07. sep. 2009

Viðbragsáætlun Bæjarbóls

Viðbragsáætlun Bæjarbóls má sjá á heimasíðu skólans undir Hagnýtt – flipi merktur inflúensa. Í viðbragðsáætlun er búið að ákveða hvernig brugðist verður við veikindum starfsmanna og barna og hvernig starfsemin breytist miðað vð breyttar aðstæður. Foreldrar eru hvattir til að kynna sér áætlunina, sérstaklega bls. 14 - 18. ... [ nánar ]
Mynd með frétt25. maí 2009

Sumarhátíð leikskólanna

Sumarhátíð leikskóla Garðabæjar verður fimmtudaginn 28 maí Farið verður með rútu að Vífilstöðum og þar verður skemmtidagskrá. Lagið “Út um mela og móa” verður flutt af börnunum á Bæjarbóli á sumarhátíðinni. ... [ nánar ]
19. maí 2009

Einstaklega skemmtilegur íþróttadagur 14. maí

Fimmtudaginn 14. maí var íþróttadagur á Bæjarbóli. Yngri börnin (2006 og 2007) byrjuðu sinn íþróttadag klukkan 10.00. Börnin völdu leiki á 5 svæðum og þau máttu prófa öll svæðin. Það sem var í boði var fallhlíf, leikurinn vakandi Björn frændi, hjólasvæði, boltasvæði og húllahringir. Börnin voru mjög dugleg og áhugasöm og voru mjög svöng þegar þau fóru inn að borða. Í hádegismat var hollur og góður matur. Pasta og bakki með grænmeti og ávöxtum og vatn að drekka. Börnin sem tóku þátt í íþróttadeginum fengu viðurkenningarstjörnu í lok dags. ... [ nánar ]
04. maí 2009

Sveitaferð miðvikudaginn 6. maí

Farið verður í heimsókn á sveitabæinn Grjóteyri í Kjós miðvikudaginn 6. maí. Mæting 8:30 komið aftur kl: 13:30. Kostnaður greiddur úr foreldrasjóði. Í hádeginu verða grillaðar pylsur. Foreldrum yngstu barnanna á Hnoðraholti og Hraunholti er boðin þátttaka ef þeir geta, til að aðstoða yngri börnin í sveitinni. ... [ nánar ]
Mynd með frétt29. apr. 2009

Lífræn söfnunartunna

Eins og áður hefur komið fram er Bæjarból skóli á Grænni grein og í dag fengum við lífræna söfnunartunnu. Þessi tunna mun gera okkur meðvitaðri um að flokka sorpið. Á meðfylgjandi mynd sést Rósa aðstoðarleikskólastjóri slá á létta strengi þegar hún tók við tunnunni okkar. ... [ nánar ]
Mynd með frétt28. apr. 2009

Frétt frá Hnoðraholti

Við á Hnoðraholti syngjum mjög mikið og erum með samverustund tvisvar á dag þar sem að setjumst niður, ræðum saman, syngjum lög og fáum okkur ávexti. Í dag byrjuðum við að æfa nýtt lag sem við munum flytja í söngsal þann 8. maí. Lagið heitir Skýin.... [ nánar ]
Mynd með frétt08. apr. 2009

Fréttir frá Nónholti

Vikulega er farið í gönguferðir á Nónholti þar sem lögð er áhersla á hreyfingu, þrótt og úthald. Í þessum ferðum læra börnin einnig að þekkja sitt nánasta umhverfi ásamt því að læra umferðarreglurnar og kynnast umferðinni. Síðasta gönguferð var farin í Flataskóla þar sem börnin skoðuðu litla unga og fiska þeim til mikillar gleði. ... [ nánar ]
Mynd með frétt27. mar. 2009

Leikhópur frá MH

Mjög skemmtileg tilbreyting á föstudegi að fá leikhóp frá MH. Föstudaginn 20 mars komu fjórar stúlkur og léku fyrir börnin Rauðhettu og úlfinn og Búkollu og á eftir fengu börnin að prófa leikbúninganna og tala við leikaranna. ... [ nánar ]
Mynd með frétt13. mar. 2009

Frétt frá Móholti

Í haust byrjuðum við á Móholti að hafa fréttamann alltaf á hverjum degi. Allir fá að vera fréttamenn og gera frétt. Og það er ógeðslega gaman að vera fréttamaður af því að maður getur sagt frá einhverjum spennandi fréttum. Við segjum fréttir af útiverunni, gönguferðum og innileikjum. Líka ef einhver er lasinn.... [ nánar ]
11. mar. 2009

Myndataka verður í leikskólanum 17 mars

Bjarni Jónsson frá Mynd ljósmyndastofu í Hafnarfirði mun annast myndatökuna. Teknar verða bekkjamyndir og einstaklingsmyndir.... [ nánar ]
26. feb. 2009

Slökkvistöðin í Hafnarfirðir heimsótt laugardaginn 28 febrúar

Heimsókn á slökkvistöðina í Hafnarfirði Foreldrafélagið ætlar að bjóða upp á ferð á slökkvistöðina í Hafnarfirði 28. febrúar kl. 14:00. Það er mæting þar. ... [ nánar ]
Mynd með frétt25. feb. 2009

Öskudagur 25 feb.

Furðufataball / frjálskæðnaður Dagskrá: 8:00 - 9:45 börnin koma 9:45 - 10:00 Skemmtun á sal 10:00 10:15 leikrit starfsmanna 11:00 ball ... [ nánar ]
09. feb. 2009

Takk fyrir komuna á degi leikskólans

Við þökkum öllum fyrir komuna á degi leikskólans. Gaman að sjá hvað margir höfðu tök á því að koma í heimsókn til okkar á degi leikskólans. Var þetta mjög skemmtilegur dagur fyrir börn og starfsfólk.... [ nánar ]
03. feb. 2009

Dagur leikskólans - 6. febrúar

Föstudaginn 6. febrúar bjóðum við alla velkomna í heimsókn til að fylgjast með og kynnast daglegu leikskólastarfi.... [ nánar ]
Mynd með frétt29. jan. 2009

Þorrablót

Erna Aradóttir var gestaspilari hjá okkur á Þorrablótinu og við fengum til okkar Bárð víking eins og undanfarin ár. Við erum búin að setja inn myndir og videó af Þorrablótinum... [ nánar ]
28. jan. 2009

Leikskóli á grænni grein

Við erum orðin leikskóli á grænni grein og stefnum að því að flagga Grænfánanum, alþjóðlegri viðurkenningu Foundation for Environmental Education (FEE – www.eco-schools.org), þegar við höfum stigið skrefin sjö.... [ nánar ]
Mynd með frétt16. jan. 2009

Gleðilegt ár

Í næstu viku hefst skipulagða starfið hjá okkur aftur. Leikfimi, þema, elstu barna verkefnið og markviss málörvun. Allir spenntir að byrja og takst á við krefjandi verkefni.... [ nánar ]
Mynd með frétt15. jan. 2009

Þorrablót

Föstudaginn 23. jan. blótum við Þorrann. Í tilefni dagsins fáum við í heimsókn í söngstund á sal Ernu Aradóttur fyrrverandi leikskólastjóra hún ætlar að spila undir söngin á gítar og Bárður Víkinginn kemur til okkar eins og undanfarin ár. Boðið verður upp á þorramat í hádeginu.... [ nánar ]
Mynd með frétt23. des. 2008

Gleðileg jól

Við óskum öllum börnum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsælts komandi árs með þökk fyrir ánægjulegt samstarf á liðnu ári. Jólakveðja frá öllu starfsfólki Bæjarbóls... [ nánar ]
17. des. 2008

Jólagleði barnanna á morgun 18 des.

Jólaball kl. 9:30 til 10:30 verður dansað í kringum jólatréð og jólasveinninn kemur í heimsókn. 11:30 – 12:30 Jólamatur, hangikjöt og tilheyrandi. Kl 14:30 – 15:10. Verður leiksýning " Grýla og jólsveinarnir" Þórdís Arnljótsdóttir leikur.... [ nánar ]
Mynd með frétt08. des. 2008

Börnin að undirbúa foreldrakaffi

Börnin eru að undirbúa foreldrakaffi á öllum deildum, baka smákökur og æfa söng.... [ nánar ]
04. des. 2008

Nýjar myndavélar

Foreldrafélag Bæjarbóls gaf leikskólanum tvær myndavélar. Þökkum við fyrir þessa höfðinglegu gjöf og munu þær nýtast okkur vel í að setja inn myndir á heimasíðuna af börnunum á öllum deildum og eru þá til myndavélar á öllum deildum leikskólans.... [ nánar ]
Mynd með frétt28. nóv. 2008

Heilsugæslan 25 ára

Mánudaginn 24 nóv. fóru þrír fulltrúar okkar fóru með gjöf handa heilsugæslunni í tilefni af 25 ára afmæli hennar. Aðaldís Emma fyrir gula hóp, Jóhann Kári fyrir rauða hóp og Brimir Snær fyrir blá hópinn. daginn 24 nóv. fóru ... [ nánar ]
14. nóv. 2008

Dagur íslenskrar tungu.

Örlítið breytt dagskrá á söngstund á sal í tilefni af Degi íslenskrar tungu. Leikskólastjóri og Jóhann Kári fóru með vísur og Móholt söng fyrir okkur lagið "Á íslensku má alltaf finna svar"... [ nánar ]
11. nóv. 2008

Krummi

Hér fyrir ofan birtast myndir af krumma, verkefni sem börnin á Móholti unnu með kolakrít.... [ nánar ]
05. nóv. 2008

Mat elstu barna á leikskólanum Bæjarbóli

Anna Magnea leikskólafulltrúi tók viðtöl við 18 börn á leikskólanum sem fædd eru árið 2003. Þau voru tekin 28 okt. síðast liðinn kl. 9:00 á bókasafninu. Má sjá niðurstöðu hægra meigin á forsíðu.... [ nánar ]

Aukaval


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi