Sérkennsla í Bæjarbóli.

Hér á Bæjarbóli hefur verið staða sérkennslustjóra undanfarin ár. Megin verkefni hans eru að bera ábyrgð á og stjórna skipulagingu, framkvæmd og endurmati sérkennslunnar í leikskólanum ásamt leikskólastjóra. Sérkennslustjóri er einnig faglegur umsjónarmaður sérkennslu í leikskólanum, annast frumgreiningu og ráðgjörf til annara starfsmanna leikskólans.

Á Bæjarbóli er sérkennslan útfærð með þeim hætti að unnið er með litla barnahópa til örva og styrkja mismunandi þroskaþætti. Hugmyndafræði um heildtækan skóla er okkar leiðarljós þar sem við teljum að börn læri best í samskiptum við önnur börn. Í okkar huga er hvert og eitt barn einstakt og taka þarf tillit til þarfa allra. Við teljum nauðsynlegt að börnin fái að blómstra í leikskólanum og styrkleikar þeirra fái notið sín. Einn mikilvægasti þátturinn í starfi sérkennslustjóra er að koma upplýsingum til starfsfólks og foreldra, en slíkt flæði er nauðsynlegt til að byggja upp traust og virðingu.

Hanna H. Leifsdóttir er sérkennslustjóri á Bæjarbóli.


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi