Gæðastefna leikskólans Bæjarbóls.



Hlutverk: Að annast uppeldi og menntun leikskólabarna og virða einstaklinginn í hópnum, getu hans og áhugasvið.



Gæðastefna:


- Að virða leik barnanna og ýta undir hæfileika þeirra til að njóta augnabliksins.

- Að efla lífsgleði og samskiptahæfni einstaklingsins.

- Að umhverfið hvetji börnin til sjálfsnáms og þroska og viðfangsefnin séu við hæfi hvers og eins.

- Að huga að heilbrigði, hollustu, hreyfingu og hreysti.

- Að fá leikskólakennara eða annað uppeldismenntað fólk til starfa.

- Að starfsfólk sæki námskeið eða fyrirlestra sem bæta við fyrri kunnáttu og nýtist í starfi.

- Að eiga gott samstarf við foreldra og heimili.

- Að samræma skólanámsskrá elstu barnanna.

- Að undirbúa börnin til áframhaldandi skólagöngu sem hugmyndaríka einstaklinga sem geta unnið sjálfstætt og í samstarfi við aðra.








































Aukaval


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi