Námskrá Bæjarbóls
Námskrá Bæjarbóls.
Formáli:
Í leikskólanum Bæjarbóli er skrifuð námskrá um öll námsvið, þar koma fram markmið, leiðir og hvaða námsgögn eru notuð. Námskráinn byggir á þekking og vinnu starfsmanna leikskólans.
Framkvæmdi:
Námskráin er grundvölluð á virkni barnanna til náms. Þar kemur fram að hverju við stefnum með hvern aldurs hóp í hverju námsviði fyrir sig.
Menntamálaráðuneytið gefur út Aðalnámskrá leikskóla. Hún er fagleg stefnumörkun og lýsir sameiginlegum markmiðum og kröfum sem eiga við um allt leikskólastarf. Hún inniheldur hugmyndafræði leikskóla, markmið og leiðir. Aðalnámskrá er ákveðinn rammi um leikskólastarfið og undirstaða frekari skólanámskrárgerðar.
Í Aðalnámskrá leikskóla er lögð áhersla á að efla alhliða þroska barnsins, heilbrigða lífshætti og lífsviðhorf, lífsleikni og sjálfstraust þess. Í leikskóla skal barnið ávallt vera í brennidepli og gert er ráð fyrir að barnið sé hæfileikaríkur og getumikill einstaklingur sem kann, getur og vill.
Hér má finna Aðalnámskrá leikskóla
Ný og endurskoðuð skólanámskrá Bæjarbóls kom út maí 2010